Fyrir skóla, félög og fyrirtæki

Seldu miða á viðburðinn þinn

Leikrit, árshátíð, tónleikar eða vorsýning. Þú setur viðburðinn inn, við förum yfir hann og opnum söluna, og kaupendur fá miðann í símann.

Þú getur vistað uppkast og klárað seinna.

Svona gengur það fyrir sig

Fjögur skref

  1. Þú setur viðburðinn inn

    Nafn, staður, dagur, plakat og miðaverð. Uppkastið vistast og þú getur klárað það seinna.

  2. Við förum yfir hann

    Outro lítur yfir viðburðinn og opnar miðasöluna. Þú færð tilkynningu þegar hann er kominn í loftið.

  3. Þú deilir hlekknum

    Kaupendur þurfa engan aðgang. Þeir velja fjölda miða, borga með korti og fá miðann strax.

  4. Við borgum út

    4-5 virkum dögum eftir viðburðinn leggjum við miðasöluna inn á reikning félagsins, að frádregnu þjónustugjaldi.

Fyrir kaupendur

Miðinn sem fólk man eftir

Miðinn í símanum
Kaupandinn fær miðann í tölvupósti og getur vistað hann í Apple Wallet eða Google Wallet.
Áminning fyrir kvöldið
Við minnum kaupendur á viðburðinn þremur dögum áður og aftur að morgni dagsins.
Gestalisti við dyrnar
Við útbúum gestalista sem dyraverðir opna í símanum. Þeir leita að nafni eða miðanúmeri.

Það sem fólk spyr að

  • Hvað kostar þetta?

    Þjónustugjald Outro er 3% af seldum miðum. Það kostar ekkert að byrja, og frír aðgangur ber ekkert gjald.

  • Hvenær fáum við greitt?

    4-5 virkum dögum eftir viðburðinn. Við þurfum kennitölu og reikningsnúmer félagsins, sem þú skráir í stillingunum á Mínum viðburðum.

  • Þurfa kaupendur aðgang að Outro?

    Nei. Þeir slá inn nafn og netfang og fá miðann sendan.

  • Hver ákveður miðaverðið og sætafjöldann?

    Þú. Þegar sætin eru uppseld lokast salan sjálf, og ef viðburðurinn er frír er nóg að setja 0 kr. í verðið.

Byrjaðu á uppkasti

Þú þarft símanúmer og netfang. Viðburðurinn fer ekki til okkar fyrr en þú sendir hann.